kea-s

‎"The only source of knowledge is experience." -Albert Einstein

Forföll

Við biðjumst velvirðingar á biðinni eftir Völvunni og hennar spá fyrir 2012.

Heyrst hefur að hún hafi farið út að borða með Bjarna Ben þann 30.des og ekki náð heilsu síðan. Hvort það sé útaf pólitískum deilum ..eða einfaldlega af of mörgum drykkjum.Hver veit?

p.s. okkur í kea líkaði vel við skaupið í ár. Kristínu og Siggu fannst það í meðallagi. Enda vildi Kristín hafa mun fleiri Kínverja í því og Sigga vissi ekki hver þess sköllótti og þessi hvíthærða voru á bílnum. Well…

Comments

Farið yfir 2011

Gleðilegt ár allir landsmenn. Nú fer bráðum að koma að föstum liði hér á síðunni, að völvan Ásta Björg komi með spá nýs árs. Þar sem að hún mun ekki vakna alveg strax get ég farið yfir spá 2011. Þessu spáði Ásta fyrir ári síðan:

2011 verður ár þroska… ég finn það á mér.. mér líður eins og ég sé 10 árum eldri heldur en síðustu áramót (ekki í útliti samt thank god)

Ár þroska sagði manneskjan. Kannski á einhvern undarlegan hátt var 2011 ár þroska.. samt fannst mér það meira vera ár 93´módelanna.

- edda verður fræg, geta svosem allir séð það, og þar afleiðandi munu koma fréttir af henni í 4 tölublöðum séð og heyrt… og myndir af mér og sigríði eiga eftir að rata á síður fjölmiðla vegna hennar… og núna verður edda í kastljósinu (ég spái þessu aftur já!)… ekki sem host að vísu en sem gestur einu sinni eða 2. það mun líka verða tekin svona umfjöllun um hana í ísland í dag og kannski verður rætt við mig eða siggu!

Edda varð vissulega fræg meðal allra helstu nörda landsins. Hún kom fram í séð og heyrt, ég fékk símhringingu og ég átti að leka öllu helsta skúbbinu um Eddu og í kjölfarið fékk ég meira að segja eina mynd af mér í fjölmiðlum. Edda hefur ekki enn komið í kastljósinu en hún fékk að vera í salnum hjá Útsvari og svo var hún líka beðin um að lesa dánartilkynningar á gufunni. Svo þetta var nánast allt rétt hjá Ástu.

- sigríður verður heitasti kennarinn í síðuskóla, hún mun líka kynnast sér eldri gaur og þetta ár verður ekkert jafn leiðinlegt og það lítur út fyrir hjá henni.

Þetta rættist.

- leggings businessinn hennar kristínar fer á flug og hún mun opna online búð.. og okey ég viðurkenni það þessar helvítis leggings eru eina flíkin sem ég get verið í hérna í þessum kulda! (úff það var erfitt að viðurkenna þetta)

 Við höfum ekki lengi frétt af leggings businessnum hennar Kiddu. Hún er búin að finna önnur plön, hætta við þau og svo framvegis.

- ásta mun fara á alvöru deit í fyrsta skipti á ævinni (plís)

Fagrir draumar rætast enn… ja eða tætast?

- ásta mun flytja til asíu, japan eða kína, og fá mér vinnu og verða somebody! en aðeins eftir að hún er búin að taka grín mikið á því í ræktinni og verða ótrúlega mjó! kannski leikkona? og nei það er ekkert unreal… það er allt hægt þarna!

Þetta með ræktina stóðst alveg, en ekki hitt. Samt ekkert unreal eins og hún sagði, svo kannski mun þetta gerast einn daginn.

- kris mun eignast iphone.. þú ert ekkert í asíu nema þú sért með iphone!

 Kristín lét undan tískupressunni en átti aðeins tólið í 4 mínútur áður en því var stolið. Eða kannski gleymdi hún símanum einhversstaðar.. það er sennilegra.

- edda mun í haust flytja til útlanda en það á eftir að vera mjög erfið ákvörðun… og ákvörðun sem henni til mikils ama verður ekki tekin fyrr en skömmu fyrir brottflutninga

Þetta hefði vel getað ræst. Við getum sagt að þetta hafi næstum því ræst.

- sigríður á eftir að taka ástfóstri við prjónana og næstu jól þá fá öll börnin hennar eddu eitthvað heima prjónað frá ömmu siggu

 Alveg rétt. Amma Sigga prjónar nú á öllum kennarafundum. Börnin fengu þó ekki heimaprjónað þessi jólin.

- edda mun hætta að borða öll sætindi… ég veit að þetta er ólíklegast spádómurinn en engu að síður eitthvað sem ég finn á mér!

 Þessi ólíklegi spádómur rættist engu að síður þó að það var aðeins tímabundið. Tímabundið eða ekki.. þetta kom okkur öllum verulega að óvart.

- ásta hættir að drekka tímabundið.. kannski er þessi spádómur bara sökum slæmrar heilsu í dag en væri gaman ef hann rættist!

 Ef þetta rættist þá fór það fram hjá mér. Hefur þá staðið yfir enn styttra en nammileysið hennar Eddu.

- sigríður verður líka tíður gestur í hlíðarfjalli

Fór af og til.

Alls ekki svo slæmt hjá völvunni. Nú bíðum við bara spennt yfir spá 2012. 

- Sigríður out


Comments

24.desember - GLEÐILEG JÓL

Þá er komið að því…já degi of seint reyndar!

Ásta, ef enginn af hinum 23 passa sem hinn fullkomni eiginmaður þá mun þessi ekki klikka. Gleðileg jól elsku þú og njóttu ástmanna þinna um jólin.

p.s. opnað verður fyrir umsóknir einmanna kvenna fyrir dagatalið 2012 þann 1.janúar í siggaastabj@gmail.com.

kea óskar öllum gleðilegra jóla!

Ásta mun síðan setja inn spá sína fyrir 2012 um áramótin enda 100% sannspá.

Comments

23.desember

Eins og gefur að skilja þá var ekki hægt að setja nýjan kandídat strax á eftir Hjalta. Hver vill koma á eftir Hjalta???

Jú herra 23.desember bjargar Ástu úr ástarsorginni. Hjalta fannst vinkonur hennar Ástu of yfirþyrmandi og höndlaði þetta ekki. Við gefumst nú samt ekki upp!

Herra 23.desember er einn af frændum Halldórs Svavars. Það er skylda að hafa einn frænda í hverju dagatali.

Við kynnum Magnús Má Guðjónsson

Drengurinn er ‘90 módel sem telst fullkomlega löglegt. Maggi er lipur með knöttinn og gæti því orðið besti vinur bróður hennar Ástu. Hann er líka afbragðsgóður golfari sem mun slá í gegn hjá tilvonandi tengdapabba.

Maggi er að læra verkfræði sem er reyndar helsti ókostur hans. Því allir vita að stærðfræðingar þola ekki verkfræðinga enda hálf vitlausir. Maggi á líka mjög sætan bróðir, svo ef þetta fer í vaskinn þá getur hún alltaf kíkt í heimsókn í næsta herbergi.

Skál fyrir ástinni á Þorláksmessu!

Comments

21. desember

21. desember í dag sem þýðir að sá tuttugasti kom og fór án nokkurs gæja. Ástæðan fyrir því er ofureinföld. Herra dagsins er nefnilega enginn annar en kea-goðið sjálft. Hjalti Már Hauksson. Það vildi bara enginn vera á undan honum.

Allar höfum við reynt okkar besta að næla í þennan fola. Edda ákvað að giftast Halldóri þegar henni varð ljóst að Hjalti yrði aldrei hennar. Kristín flúði til Kína í ástarsorg og Sigríður ákvað að ferðast um Asíu til að reyna að gleyma. Nú er komið að Ástu að reyna að töfra þennan mikla feng uppúr skónum, þ.e.a.s. lloyd skónum.

Ef henni tekst það þá fær hún ekki bara þetta hönk, heldur líka bikarinn:

Þetta brúna hár… þetta brúna hörund… þessi brúnu augu. Hver getur staðist þetta dýr?

Ásta við höldum allar með þér!

Comments

Hr. 19. desember.

Það er náttúrulega ekkert jóladagatal nema hafa einhvern vitleysing að vestan. Til að finna besta kandídatinn fyrir Ástu ákváðum við að lesa okkur aðeins til. Þannig er nefnilega mál með vexti að Ásta fór eitt sinn í eftirminnanlega ferð vestur. Þar náði hún heldur betur að hrista upp í hlutunum og sagan segir að hún hafi skilið eftir mörg brotin hjörtu. Það var meira að segja slegist um hana (bókstaflega). Á gömlu kea fundum við nokkra punkta um þessa ferð. Einn var svona:

“Ásta reyndi að sannfæra Gumma tvíbura um að hún væri ´91 módel. Hann trúði því ekki og giskaði á að hún væri fædd ´83”

Hver veit nema Ástu gangi betur að gabba hr. 19. desember sem er að sjálfsögðu tvíburabróðir umrædds Gumma. Axel Darri Guðmundsson.

Það verður að viðurkennast að við vitum ekkert um þennan kandídat. Nema Kristín lét einu sinni þau orð falla að það væri gott að kúra hjá honum. Ásta kannski staðfestir þær sögusagnir fyrir okkur.

Comments

Hr.18.desember

Því fór sem fór með Hjörvar og Ástu. Ásta sá það fljótt að Hjörvar var engan veginn jafn skemmtilegur og goðið hennar hann Auddi Blö.

En það leið nú ekki á löngu þar til næsti gaur kom til sögunnar.

Kandídat dagsins er Baldur Kristjánsson

Já eins og sést er hann Baldur algjör flipphundur eins og Ásta. Hann er ljósmyndari en Ásta hefur einmitt mikinn áhuga á að vera módel. Baldur er heimsfrömuður og lífsspekingur…Ásta…er hvorugt. En ástin mun bæta hvort annað upp, ekki satt?

Þessi kandídat er þó aðallega persónuleg jólagjöf frá Kristínu sem hefur stalkerað þennan dreng í langan tíma. Þrátt fyrir mörg hundruð tölvupósta og nálgunarbanns á Kristínu..þá lætur hún ekkert stoppa sig. Fyrst hún fær hann ekki, þá má besta vinkona hennar allaveganna fá hann.

Nú verður að spennandi hvort heitt kakó og jólagjafarölt með hellings af sjálfsmyndum af þeim tveimur muni ekki gera trikkið. Því eins og Baldur segir víst og Ásta er svo sammála “Lífið er lærdómur, lærðu’ða”.

Comments

Prófum er lokið. Nú kveðjum við hamborgara, lítinn svefn, kaffidrykkju, orkudrykki og bugunarástand.

Comments

Hr. 17. desember

Haraldur sló í gegn og um stund mátti halda að við gætum hætt að leita. En það var áður en Ásta hélt inná Danska. Haraldur var þarna til að halda hárinu sem nær niður að fótum en hvað hefur Haraldur í selebin? Hr. 17. desember var staddur inni á Danska og Ásta var með stjörnur í augunum. 

Hjörvar Hafliða var staddur við barinn með stórvini sínum Auðunni Blöndal. Ásta grét það ekki enda harður aðdáandi fm95blö. 

Afhverju ætti samband Ástu og Hjöbba að ganga upp. Jú, Hjörvar spilaði stöðu markmanns, hann fílar ekki skinku á pizzuna sína og elskar Duran Duran. Þetta er nánast eins og verið sé að lýsa Ástu Björgu! 

Svo er hann svo helvíti myndarlegur:

Ef þetta gengur ekki upp þá höfum við alltaf morgundaginn.

Comments
[Flash 10 is required to watch video]

Kandidat dagsins er Haraldur! Hvað þarf að kynna..hann kann skylmingar og er MR-ingur. Hvað er ekki hægt að elska!

Comments

Hr. 15. desember

Samband Ástu við tvo herra þess fjórtánda gekk heldur brösulega. Annar gat ekki sinnt henni þar sem hann borðaði svo mikið og hinn gat ekki hætt að syngja. Á endanum varð hún mjög pirruð. Við þann fyrri því hún vildi óska að hún gæti borðað svona mikið og litið jafn vel út og hann. Við þann seinni vegna þess að hún öfundaði hann af fagri söngrödd, já og af því að hann kunni svo mörg lög.

Hr. 15. desember kemur alla leið frá Rússlandi. Við kea stúlkur lærðum nafnið á honum bara fyrir Ástu og því er viðeigandi að hann skjóti upp kollinum hérna í dagatalinu. Andrei Arshavin gjöriði svo vel.

Stelpur hann heitir víst Sergeyevich að millinafni. Spurning að muna það í næsta miðaleik.

Þessi sjarmur heldur úti heimasíðu þar sem má senda inn spurningar til hans. Ég fór aðeins í gegnum þetta og flestar spurningarnar eru um ástina frá ungum konum víða um heim. Þegar ég var búin að skoða fjöldan allan af spurningum um hvort hann tryði á ást við fyrstu sín þá fann ég þessa:

From Asta Bjorg Iceland: What is your favorite animal? (Mine is porcupine)

Arshavin var svo elskulegur að svara. Hans er björn. 

Elsku Ásta, til hamingju með hvort annað. 

Comments

hr.14.desember

er auðvitað enginn annar en Siggi sjarmör!

Eru menn ekki annars gjaldgengir inn í þetta dagatal þegar þeir eru 1.árs?

Þarf ég að telja upp kostina..skemmtilegur,sætur, borðar mikið,gott meltingarkerfi..allt bráðnauðsynlegir kostir!

Ásta hætti annars með Balvini eftir að hafa farið með honum í miðaleik. Þrátt fyrir allar hefðbundnu lýsingarnar á honum sjálfum þá gat hann ekki vitað hver maðurinn var…enda kannski allt lýsingar úr ímyndunarafli Sigríðar.

En þar sem 13.des datt út (áhugasamir kandídatar sendi Sigríði póst)..þá kynnum við til leiks..

Kristinn Björnsson

Í raun óþarfi að kynna hann. Einn heitasti piparsveinn sem Reykjavík hefur upp á að bjóða. Hann kann spænsku, hann kann að kenna, hann kann að spila á gítar, hann kann körfubolta, hann kann að syngja…hann er handa þér Ásta!

Comments
Ásta svarar:no comment!

Ásta svarar:no comment!

Comments

hr. 12. desember

Ástæðan fyrir dagsfríi í jóladagatalinu er einföld. Herra 12. desember er bara svo svakalegur að það varð að byggja upp spennu. Herra 12. desember er nefnilega sá einstaklingur sem Ásta Björg heldur mest uppá. Gæti verið að ég sé smá að ýkja en þetta er alla veganna eini einstaklingurinn sem hún þekkir með fullu nafni. Jú, nú kveikja margir á perunni. Hr. 12. desember er nefnilega: Baldvin Dagur Rúnarsson.


Baldvin Dagur Rúnarsson skítur mjög oft upp kollinum í samræðum Ástu Bjargar. Hún talar eiginlega ekki um neinn einstakling eins mikið. Eins og hún talar mikið um hann þá veit hún ekkert sérstaklega mikið um hann. Jú, hún veit að pabbi hans heitir Rúnar og lánaði henni einu sinni bát. 

Öll þessi dulúð í kringum drenginn gerir hann einmitt svo spennandi. Hann segir ekki mikið sem hentar Ástu ágætlega. Því minna sem hún veit, því minna þarf hún að muna.

Comments

hr. 11

stelpurnar gáfu mér engan í dag… finnst það lélegt svo ég ætla velja mér

sambandið mitt og atla gekk aldrei.. ég var alltof misheppnuð fyrir sjálfstæðisflokkinn, þar sem kúlið kemur á undan öllu… þegar við vorum að labba saman í dag þá datt ég niður stigann í skólanum og hellti öllu kaffinu yfir mig… í staðinn fyrir að hjálpa mér þá lét gaurinn sig hverfa… for good times and for BAD TIMES!!! díses

ekki það að mér sé ekki bara drullusama….

en ég deitaði ss þennan í dag

ég var að hjálpa honum að gleyma el classico.. og hann var að hjálpa mér að læra netafræði… við vorum alls ekki að greiða hárið á hvoru öðru!

(síðan gleymdi hann kannski ekkert leiknum og ég fell í netafræði)

neeeeee

Comments
Gestir